reikna líkamsþyngdarstuðul
 
 
matar-og hreyfidagbók
 
 
 hollar uppskriftir
 
tenglar
 
Léttari æska fyrir barnið þitt
 
 
 
Á síðustu áratugum hefur ofþyngd og offita barna og unglinga aukist mikið hér á landi sem og annar staðar í heiminum. 
 
 
 
 
 
  
 
Á myndinni hér fyrir ofan kemur fram sú þróun sem hefur átt sér stað, hér á landi, í ofþyngd og offitu 9 ára barna frá árinu 1958 til 2008. Þróunin á síðastliðnum árum hefur verið jákvæð en þrátt fyrir það eru nú allt að 22% 9 ára barna of þung.


Foreldrar gegna lykilhlutverki í því að koma í veg fyrir ofþyngd barna sinna og því er mjög mikilvægt að þeir séu vel upplýstir um hve vandinn er mikill og hvað þeir geta gert til þess að koma í veg fyrir ofþyngd barna sinna. Heimasíðan Léttari æska fyrir barnið þitt er liður í því að auðvelda foreldrum að koma  í veg fyrir ofþyngd barna sinna, stuðla að heilbrigðara líferni þeirra og léttari æsku.
 
Verkefnið Léttari æska fyrir barnið þitt er heimasíða sem hefur að geyma upplýsingar ráð og fróðleik fyrir foreldra sem vilja huga vel að heilsu barna sinna og koma í veg fyrir ofþyngd þeirra.
Á heimasíðunni geta foreldrar fyllt úr matar – og hreyfidagbók í samráði við börn sín. Slík dagbók á að auðvelda foreldrum og börnum að skipuleggja daglegar matar- og hreyfivenjur sem skila sér í heilbrigðara líferni og léttari æsku.

Vissir þú að allt að 22% 9 ára barna eru ofþung.

Hvað með barnið þitt ?