Léttari æska fyrir barnið þitt
Á síðustu áratugum hefur ofþyngd og offita barna og unglinga aukist mikið hér á landi sem og annar staðar í heiminum.

Á myndinni hér fyrir ofan kemur fram sú þróun sem hefur átt sér stað, hér á landi, í ofþyngd og offitu 9 ára barna frá árinu 1958 til 2008. Þróunin á síðastliðnum árum hefur verið jákvæð en þrátt fyrir það eru nú allt að 22% 9 ára barna of þung.
Foreldrar gegna lykilhlutverki í því að koma í veg fyrir ofþyngd barna sinna og því er mjög mikilvægt að þeir séu vel upplýstir um hve vandinn er mikill og hvað þeir geta gert til þess að koma í veg fyrir ofþyngd barna sinna. Heimasíðan Léttari æska fyrir barnið þitt er liður í því að auðvelda foreldrum að koma í veg fyrir ofþyngd barna sinna, stuðla að heilbrigðara líferni þeirra og léttari æsku.






