reikna líkamsþyngdarstuðul
 
 
matar-og hreyfidagbók
 
 
 hollar uppskriftir
 
tenglar
Matar- og hreyfidagbók fjölskyldunnar
Til þess að vinna bug á ofþyngd og offitu meðal barna og unglinga er mikilvægt að allir í fjölskyldunni tileinki sér þær breytingar sem koma til og tileinki sér breyttan lífsstíl. Hér að neðan er hægt að búa til matar– og hreyfidagbók þar sem fjölskyldan getur í sameiningu gert matar- og hreyfiáætlun, skipulagt hollt og gott mataræði og reglulega hreyfingu.

Innskráning:

Skráðu þig inn með notendanafni og lykilorði.




 

 

 

Ekki skráður notandi? smelltu hér.

Gleymt lykilorð?


Það er mikilvægt að hafa í huga þegar gera á matar- og hreyfidagbók að
 
Heildarneysla barna og unglinga er mismunandi eftir aldri. Hér í töflunni að neðan er hægt að sjá hver algeng orkuþörf barna og unglinga er miðað við meðalþyngd og meðalhreyfingu.
 
Aldur
Stelpur
Strákar
6
1270
1360
8
1770
1960
10
1910
2200
12
2080
2340
14
2270
2580
16
2370
2870
 
Hér er hægt að reikna orku- og næringarinnihald (kkal) fæðutegunda og máltíða
 
Það er mikilvægt að hafa í huga að ekki er nóg að heildarorka sé í samræmi við orkuþörf barna. Það er mikilvægt að næringarinnihald þess matar sem þau neyta sé rétt, það er að segja að orkuefni, prótein, kolvetni og fita, séu í réttu magni og gæði þeirra rétt:
  • Hæfilegt er að prótein sé 10-20% af heildarorku 
    • Fiskur, kjúklingur, kjöt og mjólkurvörur innihalda mikið prótein sem og kornmeti og baunir.
  • Hæfilegt er að fita sé 25-35% af heildarorku
    • Gæði fitunnar skiptir miklu máli og er mikilvægt að velja mjúka fitu eða olíu í stað harðrar fitu, það er að segja mettaðar fitusýrur eða trans-fitusýrur en ráðlegt er að slík fita sé 10% af heildarorkunni. Hörð fita er einkum í smjöri, kexi, snakki og nammi.
 
  • Hæfilegt er að kolvetni sé 50-60% af heildarorku  
    • Hér er mikilvægt að kolvetnið sé rétt það er að segja gróft kornmeti, ávextir og grænmeti. Sykur inniheldur mikið kolvetni en í honum eru engin bætiefni,  sykur er því ekki hollustuefni.
 
 
 Mikilvægt er að
 
 
  • borða alltaf morgunmat.
  • borða ávexti og grænmeti í millibita.
  • skipuleggja hádegismat með tilliti til þess sem boðið er uppá í skólum. Það er að segja ef barn eða unglingur hefur ekki áhuga á því að borða það sem er í matinn í skólanum geta foreldrar og barn ákveðið hvað skal borða í staðin.
  • hafa reglulegan kvöldmatartíma þar sem fjölskyldan borðar saman.
  • borða eitthvað létt í kvöldbita  t.d.  ávexti eða grænmeti.
 

 
 
 
 
Fæðuhringur Lýðheilsustöðvar
 
 
 
 

Verkefnið Léttari æska fyrir barnið þitt er heimasíða sem hefur að geyma upplýsingar ráð og fróðleik fyrir foreldra sem vilja huga vel að heilsu barna sinna og koma í veg fyrir ofþyngd þeirra.
Á heimasíðunni geta foreldrar fyllt úr matar – og hreyfidagbók í samráði við börn sín. Slík dagbók á að auðvelda foreldrum og börnum að skipuleggja daglegar matar- og hreyfivenjur sem skila sér í heilbrigðara líferni og léttari æsku.

Vissir þú að allt að 22% 9 ára barna eru ofþung.

Hvað með barnið þitt ?