Verkefnið Léttari æska fyrir barnið þitt er heimasíða sem hefur að geyma upplýsingar ráð og fróðleik fyrir foreldra sem vilja huga vel að heilsu barna sinna og koma í veg fyrir ofþyngd þeirra.
Á heimasíðunni geta foreldrar fyllt úr matar – og hreyfidagbók í samráði við börn sín. Slík dagbók á að auðvelda foreldrum og börnum að skipuleggja daglegar matar- og hreyfivenjur sem skila sér í heilbrigðara líferni og léttari æsku.

Vissir þú að allt að 22% 9 ára barna eru ofþung.

Hvað með barnið þitt ?